Skortur í Írak (frétt)
Skortur í Írak
Frétt í Morgunblaðinu 4. júní 1997
750 þúsund börn, 27% allra barna í Írak, eru vannærð samkvæmt skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna. í flestum tilfellum mun skorturinn hafa varanleg áhrif á börnin, bæði líkamleg og andleg. Næringarskortur var svo til óþekktur í Írak áður en Sameinuðu þjóðirnar settu viðskiptabann á landið í kjölfar innrásarinnar í Kúveit, árið 1990.